Aston Villa er að undirbúa samningstilboð fyrir velska leikmanninn Harry Wilson, sem rennur út á samningi hjá Fulham eftir þetta tímabil. Telegraph greinir frá.
Þessi 28 ára gamli sóknarsinnaði leikmaður er markahæsti maður Fulham á tímabilinu með átta deildarmörk.
Fulham er að reyna halda Wilson sem ætlar þó að halda öllum möguleikum opnum.
Telegraph segir að Wilson hafi verið á ratsjá Aston Villa í janúarglugganum, en Marco Silva, stjóri Fulham, hafi verið ákveðinn í að halda Wilson áfram hjá félaginu.
Villa er sagt hafa mikinn áhuga á því að fá hann á frjálsri sölu í sumar, en Everton er einnig sagt í baráttunni.
Wilson er uppalinn hjá Liverpool en var sendur út á láni í sex skipti. Tímabilið 2021-2022 var hann á láni hjá Fulham og hjálpaði liðinu að komast aftur upp í úrvalsdeildina áður en vistaskipti hans voru gerð varanleg fyrir 12 milljónir punda.
Athugasemdir



