Luisao, titlahæsti leikmaður í sögu portúgalska félagsins Benfica, segist hafa orðið fyrir barðinu á rasistum eftir að hafa tekið upp hanskann fyrir Vinicius Jr eftir leik liðsins gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á dögunum.
Luisao fordæmdi hegðun Benfica og argentínska leikmanninn Gianluca Prestianni eftir leikinn.
Vini Jr kvartaði til dómarans undan Prestianni sem hann sakaði um að hafa beitt sig kynþáttaníði. Prestianni sást lyfta treyjunni yfir varir sínar til að segja eitthvað við Brasilíumanninn sem hljóp beint til dómarans.
Leikurinn var stöðvaður en settur aftur í gang rúmum tíu mínútum síðar. Málið er til rannsóknar hjá UEFA, en Prestianni gæti átt yfir höfði sér langt bann ef hann verður fundinn sekur um kynþáttaníð.
Margir hafa komið Vini til varnar, þar á meðal Luisao, sem er titlahæsti og næst leikjahæsti leikmaður í sögu Benfica, en hann segist sjálfur hafa orðið fyrir rasisma við að viðra skoðanir sínar.
„Ég var kallaður api og Júdas á samfélagsmiðlum. Fólk móðgaði mig og sagði mér að stíga aldrei aftur fæti inn á leikvanginn. Benfica-treyjan er orðin eins og hluti af minni húð. Ég er mjög leiður yfir þessu þó maður sé að taka afstöðu í einhverju sem er mjög alvarlegt eins og í þessu tilviki,“ sagði Luisao, sem mun samt halda áfram að berjast gegn kynþáttafordómum í heimi fótboltans.
Athugasemdir



