Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   fim 19. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Sambandsdeildin í dag - Íslendingaliðin á útivelli
Crystal Palace heimsækir Zrinjski
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það gætu tveir Íslendingar komið við sögu í umspilsleikjum dagsins í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar í Lech Poznan heimsækja KuPS til Finnlands á meðan enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace fer til Tékklands að spila við Sigma Olomuc

FC Noah frá Armeníu, fyrrum félagslið Guðmunds Þórarinssonar, tekur einnig á móti AZ Alkmaar í áhugaverðum slag.

Í kvöld fer Fiorentina til Póllands að spila við Jagiellonia, fyrrum félag Böðvars Böðvarssonar, en Albert Guðmundsson meiddist fyrir tæpum tveimur vikum og verður ekki með.

Að lokum eiga Logi Tómasson og félagar hans í tyrkneska liðinu Samsunspor útileik gegn KF Shkëndija í Makedóníu.

Leikir dagsins
17:45 KuPS - Lech Poznan
17:45 Noah - AZ Alkmaar
17:45 Sigma Olomouc - Lausanne
17:45 Zrinjski Mostar - Crystal Palace
20:00 Drita FC - NK Celje
20:00 Jagiellonia - Fiorentina
20:00 Omonia - Rijeka
20:00 Shkendija - Samsunspor
Athugasemdir
banner
banner