PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Brownhill og Carrasco fjarlægjast fallbaráttuna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru þrír leikir fram á sama tíma í efstu deild í Sádi-Arabíu í kvöld þar sem Josh Brownhill, fyrrum fyrirliði Burnley, átti stoðsendingu og Yannick Carrasco skoraði í dýrmætum sigri Al-Shabab.

Al-Shabab lagði Damac að velli í fallbaráttunni og er núna með 22 stig eftir 22 umferðir, sjö stigum fyrir ofan Damac sem situr í fallsæti.

Yacine Adli, fyrrum leikmaður AC Milan, var einnig í byrjunarliði Al-Shabab í kvöld ásamt Wesley Hoedt, fyrrum leikmanni Southampton, og marokkósku markavélinni Abderrazak Hamdallah.

Fashion Sakala, fyrrum lykilmaður hjá Rangers, var þá hetjan í sigri Al-Fayha gegn Al-Taawon. Sakala skoraði tvennu í síðari hálfleik til að tryggja 2-3 sigur.

Chris Smalling var einnig á sínum stað í byrjunarliði Al-Fayha, sem er í neðri hluta deildarinnar með 26 stig, heilum þrettán stigum á eftir Al-Taawon.

Að lokum var Julian Quinones hetjan þegar Al-Qadisiya sigraði Al-Okhdood. Öll útiliðin sigruðu því leikina sína í kvöld.

Quinones skoraði þrennu í skemmtilegum slag þar sem Mateo Retegui var einnig í byrjunarliði Al-Qadisiya ásamt Nacho Fernández, Nahitan Nández og Koen Casteels.

Al-Qadisiya er í toppbaráttu með 50 stig eftir 22 umferðir, aðeins þremur stigum á eftir toppliði Al-Hilal sem á leik til góða.

Damac 1 - 3 Al-Shabab
0-1 Abderrazak Hamdallah ('18)
1-1 V. Vada ('30)
1-2 S. Balobaid ('58)
1-3 Yannick Carrasco ('84)

Al-Taawon 2 - 3 Al-Fayha
0-1 Y. Benzia ('44)
0-2 Fashion Sakala ('52)
1-2 Martinez Tobinson ('74)
2-2 M. Al-Dossari ('79)
2-3 Fashion Sakala ('89)

Al-Okhdood 2 - 4 Al-Qadisiya
0-1 Julian Quinones ('34)
1-1 Christian Bassogog ('43)
1-2 W. Al-Ahmad ('50)
1-3 Julian Quinones ('74)
2-3 A. Al-Hatila ('86)
2-4 Julian Quinones ('87)
Athugasemdir
banner
banner
banner