Ítalski þjálfarinn Carlo Ancelotti hefur staðfest að hann verði áfram þjálfari brasilíska landsliðsins næstu fjögur árin.
Ancelotti tók við landsliðinu á síðasta ári og stýrði því á HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar.
Hann hefur nú náð samkomulagi við sambandið um nýjan samning sem gildir til næstu fjögurra ára en mikil ánægja er með hans störf í þágu landsliðsins.
„Ég mun framlengja samning minn til næstu fjögurra ára. Þetta er nýtt starf og ég kann mjög vel við mig hér,“ sagði Ancelotti við Movistar.
Ancelotti er vinsæll í klefanum enda þjálfað nokkra leikmenn liðsins hjá Real Madrid en þar má nefna þá Vinicius Junior, Eder Militao, Rodrygo og Endrick.
Athugasemdir


