Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Nico Paz og Leao skoruðu í jafntefli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Milan 1 - 1 Como
0-1 Nico Paz ('32)
1-1 Rafael Leao ('64)

AC Milan tók á móti Como í spennandi slag í eina leik kvöldsins í ítalska boltanum.

Það var lítið að frétta í fyrri hálfleik en Como var hættulegra í sínum aðgerðum og náði forystunni þökk sé frábærri pressu frá Nico Paz sem tókst að plata hinn þaulreynda Mike Maignan í að gera mistök.

Nico Paz komst inn í sendingu frá Maignan og skoraði í autt netið.

Milan var sterkara liðið í nokkuð jöfnum síðari hálfleik og náði að gera jöfnunarmark eftir skyndisókn á 64. mínútu. Rafael Leao slapp í gegn eftir langa sendingu fram frá Ardon Jashari. Þrír varnarmenn Como voru í Leao, en Jean Butez markvörður ákvað þrátt fyrir það að spretta út úr vítateignum.

Butez var langt frá því að ná til boltans og hafði Leao nægan tíma til að lyfta skoppandi boltanum yfir hann og í netið. Mjög vel klárað hjá Leao eftir hörmuleg mistök hjá Butez.

Hvorugu liði tókst að gera sigurmark og 1-1 jafntefli nokkuð sanngjörn niðurstaða. Bæði mörkin komu eftir markmannsmistök hjá tveimur af betri markvörðum deildarinnar.

Milan er í öðru sæti Serie A deildarinnar með 54 stig eftir 25 umferðir, sjö stigum á eftir nágrönnum sínum í sterku liði Inter.

Como er í sjötta sæti með 42 stig, fimm stigum frá meistaradeildarsæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner