PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Tilboðin munu rigna yfir Senesi í sumar
Mynd: EPA
Marcos Senesi, leikmaður Bournemouth og argentínska landsliðsins, mun yfirgefa Bournemouth þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið, en hann er sagður með einn áfangastað í forgangi.

Þessi 28 ára gamli miðvörður er einn eftirsóttasti varnarmaðurinn á markaðnum í sumar.

Teamtalk segir Barcelona hafa áhuga á leikmanninum og er hann sagður spenntastur fyrir þeim kosti, en Atlético Madríd er einnig í myndinni.

Ef Barcelona ákveður að skoða önnur skotmörk þá opnast baráttan alveg upp á gátt.

Samkvæmt miðlinum eru ítölsku risarnir Juventus og Napoli áhugasöm um hann og hefur Juventus verið í stöðugu sambandi við umboðsmann kappans.

Sex félög í ensku úrvalsdeildinni hafa horft til hans síðustu mánuði, en þar má helst nefna Aston Villa, Chelsea, Newcastle United og Tottenham.

Það er alla vega ljóst að Senesi, sem hefur komið við sögu í 27 leikjum með Bournemouth á tímabilinu, mun hafa úr mörgum tilboðum að velja í sumarglugganum.
Athugasemdir
banner