Sky Sports segir frá því að kantmaðurinn Harvey Elliott, sem er hjá Aston Villa á lánssamningi frá Liverpool sem inniheldur kaupákvæði, geti spilað í Evrópudeildinni án þess að virkja ákvæðið.
Elliott hefur aðeins komið við sögu í sjö leikjum með Villa það sem af er tímabils eftir meiðslavandræði en Unai Emery þjálfari vill nota hann á seinni hluta tímabils.
Aston Villa vill þó ekki kaupa leikmanninn og ætlar ekki að nýta 35 milljóna punda kaupákvæðið, sem verður að kaupskyldu ef Elliott spilar ákveðið marga leiki.
Sky segir að ákvæðið nái aðeins utan um leiki í ensku úrvalsdeildinni, ekki í evrópukeppni eða bikar. Villa er þó dottið úr leik í báðum bikarkeppnum enska tímabilsins en mætir til leiks í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í mars.
Elliott hefur verið utan hóps síðustu þrjá leiki í röð eftir að hafa spilað allan leikinn í sigri gegn RB Salzburg og komið inn af bekknum í tapi gegn Brentford í kringum síðustu mánaðamót.
07.02.2026 09:00
Emery um Elliott: Liverpool heldur á lyklinum
Athugasemdir





