Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Clattenburg biðst afsökunar eftir ummæli í beinni útsendingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Mark Clattenburg hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í leik Real Madrid gegn Benfica sem var sýndur í beinni útsendingu á Prime Video á þriðjudagskvöldið.

Vinícius Júnior skoraði eina mark leiksins í sigri Real og fagnaði fyrir framan stuðningsmenn Benfica, sem fór hvorki vel í stuðningsmenn portúgalska stórveldisins né leikmenn.

Argentínumaðurinn Gianluca Prestianni sagði eitthvað við Vinícius sem lét brasilíska kantmanninn fara til dómarans og ganga svo af velli. Hann sakar Prestianni um að hafa kallað sig apa og tók Mbappé undir ásakanirnar í viðtali að leikslokum.

Þegar atvikið átti sér stað í Lissabon byrjaði Clattenburg á því að kenna Vinícius um aðstæðurnar vegna hegðunar hans eftir markið, ekki ósvipað því sem José Mourinho þjálfari Benfica sagði að leikslokum.

„Hann skoraði glæsilegt mark en hann hefði átt að snúa aftur á sinn vallarhelming og halda áfram með leikinn," sagði Clattenburg í útsendingu Prime.

„Vinícius hjálpar sjálfum sér ekki með þessari hegðun og gerir dómaranum erfitt fyrir. Hann skoraði stórkostlegt mark og allt sem hann þarf að gera er að snúa aftur á vallarhelminginn sinn, en hann gerir aðstæðurnar erfiðar með þessari ákvörðun."

Clattenburg fékk mikla gagnrýni fyrir þessi ummæli sín og baðst afsökunar á samfélagsmiðlinum X.

„Ekkert réttlætir kynþáttafordóma í íþróttum eða lífinu. Ég er þakklátur fyrir að hafa hér tækifæri til að taka afstöðu eftir ummælin sem ég lét falla í beinni útsendingu," skrfaði Clattenburg.

„Mér skjátlaðist og mér þykir það leitt. Það er starf mitt að bregðast við atvikum í beinni útsendingu og í þessu tilviki notaði ég rangt og óheppilegt orðaval.

„Ég er að læra af þessu og kann að meta samstarfsfólk mitt sem sýndi mikla reisn við úrvinnslu málsins."


   18.02.2026 13:42
Gagnrýna Mourinho harðlega fyrir „gaslýsingu“

Athugasemdir
banner
banner