Gianluca Prestianni er þegar búinn að svara spurningum frá evrópska fótboltasambandinu, UEFA, varðandi meinta kynþáttafordóma sem hann var með í garð Vinícius Júnior í Meistaradeild Evrópu í miðri viku. ESPN greinir frá.
Vinícius skoraði eina mark leiksins er Real Madrid lagði Benfica að velli í Portúgal og fagnaði með að dansa fyrir framan stuðningsmenn heimaliðsins sem brugðust illa við. Vinícius var að svara apahljóðum úr stúkunni með dansinum sínum sem reitti líka leikmenn Benfica til reiði.
Argentínumaðurinn Prestianni reifst við Vinícius en setti treyjuna fyrir munninn á sér þegar hann lét niðrandi orð falla og brást Vini við með að hlaupa til dómarans.
Vinícius og liðsfélagi hans Kylian Mbappé eru sannfærðir um að Prestianni hafi kallað Vinícius apa, sem á spænsku er orðið 'mono'.
Prestianni tók samtal við UEFA og byggir vörn hans á því að leikmenn Real Madrid hafi verið að misskilja. Hann hafi verið að segja 'maricón', ekki 'mono', og því verið að kalla brasilíska kollega sinn homma frekar en apa - sem er einnig refsiverð hegðun.
UEFA er með málið til rannsóknar en seinni leikur liðanna fer fram á þriðjudagskvöldið og á eftir að koma í ljós hvort Prestianni verði með eða ekki.
19.02.2026 10:00
Prestianni gæti fengið tíu leikja bann
Athugasemdir


