Hildur Antonsdóttir átti frábæran leik með Madrid CFF sem vann langþráðan 5-0 stórsigur á Alhama í Liga F á Spáni í dag.
Madrid hafði ekki unnið leik í rúman mánuð áður en því tókst loks að koma sér aftur á sigbraut í dag.
Hildur var eins og venjulega í byrjunarliði Madrídarliðsins og lagði upp annað markið fyrir Kamillu Melgaard sem gerði tvö mörk í leiknum.
Þegar um hálftími var til leiksloka fór Hildur af velli. Gott dagsverk hjá henni en Madrid er í 7. sæti deildarinnar með 30 stig.
Birta Georgsdóttir byrjaði hjá Genoa sem tapaði fyrir Como, 1-0, í Seríu A á Ítalíu.
Þetta var fimmta tap Genoa í röð í deildinni. Birta kom til Genoa frá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks í byrjun árs, en heldur áfram að bíða þolinmóð eftir fyrsta sigrinum með nýja liðinu.
Genoa er í neðsta sæti deildarinnar með 7 stig þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir


