Arsenal kastaði frá sér tveggja marka forystu gegn Úlfunum í eina leik gærkvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal, sem er á toppi deildarinnar, komst í 2-0 gegn botnliðinu en missti það svo frá sér niður í jafntefli.
Arsenal hefur verið á toppi deildarinnar allt tímabilið og fengið ótal tækifæra til að stinga af, en þeir hafa ekki nýtt sér það. Núna er Manchester City að anda ofan í hálsmálið á þeim.
„Ég veit að Arsenal hefur verið í þessari stöðu þrisvar sinnum áður en það gæti verið að það gerist aldrei aftur," sagði Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal, eftir leikinn í gær.
„Núna er þetta ekki lengur í þeirra höndum."
Arsenal er enn með fimm stiga forskot á toppnum en Merson hefur rétt fyrir sér að vissu leyti. City á leik til góða og svo eiga liðin eftir að mætast á Etihad-vellinum í Manchester. City verður meistari ef þeir vinna alla sína leiki sem þeir eiga eftir. Það er þó líka satt fyrir Arsenal.
Lundúnafélagið hefur þrjú tímabil í röð lent í öðru sæti og spurning hvort það verði raunin aftur.
Athugasemdir



