PSG hefur mikinn áhuga á Erling Braut Haaland, nokkur félög berjast um undirskrift Bernardo Silva og þá er Anthony Gordon orðaður við bæði Arsenal og Liverpool. Powerade-slúðurpakki dagsins inniheldur þetta allt og margt fleira.
Paris Saint-Germain hefur spurst fyrir um norska framherjann Erling Braut Haaland (25) sem er á mála hjá Manchester City og hans langtímaplön. Talið er að hann vilji helst fara til Spánar ef hann ákveður að yfirgefa Man City. (Teamtalk)
Aston Villa vill fá velska miðjumanninn Harry Wilson (28) er samningur hans við Fulham rennur út í sumar, en Everton er einnig sagt í baráttunni um undirskrift hans. (Telegraph)
Argentínski miðvörðurinn Cristian Romero (27) og enski miðjumaðurinn Conor Gallagher (26) eru meðal þeirra sem munu nánast örugglega yfirgefa Tottenham ef liðið fellur úr úrvalsdeildinni í vor. (Athletic)
Barcelona og Atlético Madríd hafa áhuga á portúgalska miðjumanninum Bernardo Silva (31), sem mun renna út á samningi hjá Man City í sumar. Juventus og Mónakó eru einnig að skoða leikmanninn. (Teamtalk)
Carlo Ancelotti ætlar að endurnýja samning sinn og vera áfram þjálfari brasilíska landsliðsins næstu fjögur árin. (Movistar)
Olivier Giroud (39), markahæsti leikmaður í sögu franska landsliðsins, stendur á krossgötum hjá Lille, en hann hefur verið arfaslakur í síðustu leikjum og er framtíð hans sögð í óvissu. (L'Equipe)
Anthony Gordon (24), leikmaður Newcastle og enska landsliðsins, segir sögusagnir um framtíðina ekki hafa áhrif á sig, en hann hefur verið orðaður við bæði Arsenal og Liverpool. (Sun)
James Trafford (23), markvörður Man City, vill frekar fara til Aston Villa heldur en Newcastle United í sumar. (Football Insider)
Barcelona ætla ekki að missa fleiri unga leikmenn til keppinauta sinna og hafa því styrkt regluverk um samninga leikmanna, en þetta var sett í framkvæmd eftir að Dro Fernandez (18) fór til Paris Saint-Germain í síðasta mánuði fyrir aðeins 8,2 milljónir evra. (RMC Sport)
Bandaríska félagið LA Galaxy er að fylgjast náið með stöðu Philippe Coutinho (33) sem er án félags eftir að Vasco da Gama, uppeldisfélag hans, samþykkti að rifta samningi leikmannsins. (AS)
Athugasemdir



