PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Senesi tekur ákvörðun í sumar - Iraola eftirsóttur
Mynd: Bournemouth
Mynd: EPA
Afar litlar líkur eru á því að miðvörðurinn Marcos Senesi ákveði að skrifa undir nýjan samning við Bournemouth, en hann verður samningslaus komandi sumar.

Senesi er afar eftirsóttur og telja enskir fjölmiðlar að tilboðum muni rigna yfir leikmanninn í sumar.

Erlend félög mega nú þegar ræða við varnarmanninn en talið er að Senesi ætli að bíða til sumars með að taka ákvörðun.

„Ég held að staðan sé ennþá opin. Þetta er ekki auðvelt, við erum að reyna að semja við hann en Marcos hefur ekki tekið ákvörðun. Stundum ákveða leikmenn að skrifa undir og stundum ekki, þetta kemur í ljós," segir Andoni Iraola, mikilsmetinn þjálfari Bournemouth.

Iraola rennur einnig út á samningi komandi sumar og getur búist við mikið af samningstilboðum. Manchester United, Crystal Palace, Athletic Bilbao og Manchester City eru meðal félagsliða sem hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm um að ráða þjálfarann til starfa.

Talið er að Spánverjinn sé þreyttur á því að vera hjá Bournemouth, félagsliði sem missir sína bestu leikmenn ár eftir ár.

   20.02.2026 09:30
Tilboðin munu rigna yfir Senesi í sumar

Athugasemdir
banner
banner