Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 22:04
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Smjörhanskar markvarðarins komu liði Sverris í óþægilega stöðu - Tap hjá Hákoni
Alban Lafont átti ekki góðan leik í marki Panathinaikos
Alban Lafont átti ekki góðan leik í marki Panathinaikos
Mynd: EPA
Sverrir Ingi lék allan leikinn og fékk gult spjald
Sverrir Ingi lék allan leikinn og fékk gult spjald
Mynd: EPA
Hákon spilaði í tapi Lille á heimavelli
Hákon spilaði í tapi Lille á heimavelli
Mynd: EPA
Íslendingaliðin í Evrópudeildinni náðu ekkert sérstaklega góðum úrslitum í umspilinu í kvöld.

Norska liðið Brann tapaði fyrir Bologna, 1-0, fyrr í kvöld og fengu Lille og Panathinaikos ekki það sem þau vildu í seinni leikjunum.

Sverrir Ingi Ingason var í vörn Panathinaikos í 2-2 jafntefli gegn Viktoria Plzen frá Tékklandi.

Hann átti flottan leik í vörninni, en Alban Lafont, markvörður liðsins, var skúrkurinn. Hann fékk á sig tvö mörk þar sem hann hefði átt að gera betur.

Plzen komst yfir með marki Denis Visinsky sem Lafont átti að verja, en í staðinn blakaði hann boltanum í netið.

Andrew Tetteh sneri taflinu við fyrir Panathinaikos með tveimur frábærum mörkum, en var farinn af velli þegar Plzen náði í jöfnunarmark.

Tomas Ladra átti skot fyrir utan teig sem Lafont blakaði aftur upp í loft og í eigið net. Slök frammistaða hans í kvöld og Panathinaikos komið í mjög óþægilega stöðu, en liðið heimsækir Plzen til Tékklands í næstu viku og það verður hægara sagt en gert að ná hagstæðum úrslitum þar.

Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem tapaði fyrir Rauðu stjönunni, 1-0, á heimavelli sínum.

Íslenski landsliðsmaðurinn lék fyrri hálfleikinn hjá Lille en var tekinn af velli. Serbarnir gerðu mjög vel að halda Lille í skefjum sem þarf nú að ná í sigur í Serbíu.

Stuttgart er komið með annan fótinn í 16-liða úrslit eftir öruggan 4-1 sigur á Celtic í Skotlandi.

Bilal El Khannouss kom gestunum í Stuttgart yfir en varnarmistök urðu til þess að Benjamin Nygren náði að jafna metin fyrir skosku meistarana.

El Khanouss kom Stuttgart aftur yfir og tvöfaldaði Jamie Leweling forystuna snemma í þeim síðari. Tiago Tomas gaf Stuttgart síðan mjög gott veganesti fyrir seinni leikinn með því að skora fjórða markið í uppbótartíma.

Ludogorets vann frábæran 2-1 sigur á Ludogorets. Hinn spænski Son skoraði stórbrotið sigurmark búlgarska liðsins er hann lék á leikmann fyrir utan teiginn og klíndi boltanum í samskeytin.

Úrslit og markaskorarar:

Celtic 1 - 4 Stuttgart
0-1 Bilal El Khannouss ('15 )
1-1 Benjamin Nygren ('21 )
1-2 Bilal El Khannouss ('28 )
1-3 Jamie Leweling ('57 )
1-4 Tiago Tomas ('90 )

Lille 0 - 1 Crvena Zvezda
0-1 Franklin Tebo Uchenna ('45 )

Ludogorets 2 - 1 Ferencvaros
1-0 Kwadwo Duah ('24 )
1-1 Bamidele Yusuf ('27 )
2-1 Son ('67 )

Panathinaikos 2 - 2 Plzen
0-1 Denis Visinsky ('11 )
1-1 Andreas Tetteh ('31 )
2-1 Andreas Tetteh ('61 )
2-2 Tomas Ladra ('80 )
Athugasemdir
banner
banner
banner