Nottingham Forest heimsækir Fenerbahce
Útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar byrjar í dag þegar sextán lið berjast um síðustu átta sætin í 16-liða úrslitunum.
Lærlingar Freys Alexanderssonar í liði Brann eiga heimaleik við Bologna frá Ítalíu. Þeir munu draga innblástur frá sínum helstu keppinautum í norsku deildinni, Bodö/Glimt, sem unnu sögulegan sigur á Inter í samskonar umspilsleik í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Brann heimsótti Bologna í deildarkeppninni í nóvember og náði markalausu jafntefli gegn tíu andstæðingum, eftir að Charalampos Lykogiannis lét reka sig af velli um miðbik fyrri hálfleiks.
Enska úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest heimsækir tyrkneska stórveldið Fenerbahce á meðan gríska stórveldið PAOK fær Celta Vigo í heimsókn frá Spáni.
Í kvöld eiga Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille heimaleik við Rauðu stjörnuna frá Serbíu á meðan Skotlandsmeistarar Celtic fá Stuttgart í heimsókn.
Sverrir Ingi Ingason og liðsfélagar hans í Panathinaikos taka á móti Viktoria Plzen frá Tékklandi.
Leikir dagsins
17:45 SK Brann - Bologna
17:45 Dinamo Zagreb - Genk
17:45 Fenerbahce - Nott. Forest
17:45 PAOK - Celta Vigo
20:00 Celtic - Stuttgart
20:00 Lille - Rauða stjarnan
20:00 Ludogorets - Ferencvaros
20:00 Panathinaikos - Plzen
Athugasemdir




