Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 15:53
Brynjar Ingi Erluson
Geta sent nágranna sína niður um deild á morgun
Sheffield Wednesday gæti fallið á morgun
Sheffield Wednesday gæti fallið á morgun
Mynd: Sheffield Wednesday
Sheffield United getur sent nágranna sína í Sheffield Wednesday niður um deild þegar liðin eigast við á Bramall Lane á morgun.

Það var ekki spurning hvort heldur hvenær það kæmi að þessu augnabliki hjá Wednesday.

Í október voru tólf stig dregin af Wednesday eftir að félagið var sett í greiðslustöðvun og sex í viðbót dregin af þeim í desember.

Árangurinn hefur þá ekkert hjálpað heldur en Wednesday hefur ekki unnið leik síðan í september. Liðið hefur tapað níu deildarleikjum í röð og gæti tíunda tapið sent liðið niður í C-deildina.

Wednesday heimsækir nágranna sína og erkifjendur í United á morgun en takist Wednesday ekki að vinna verður fall liðsins staðfest.

Liðið er á botninum með -7 stig og aðeins 42 stig eftir í pottinum, en WBA situr rétt fyrir ofan fallsæti með 34 stig.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 33 19 8 6 68 36 +32 65
2 Middlesbrough 33 18 8 7 50 33 +17 62
3 Millwall 33 16 8 9 42 40 +2 56
4 Ipswich Town 31 15 9 7 54 34 +20 54
5 Hull City 32 16 6 10 51 46 +5 54
6 Wrexham 33 13 12 8 51 44 +7 51
7 Birmingham 33 13 10 10 45 40 +5 49
8 Derby County 33 13 9 11 47 41 +6 48
9 Watford 33 12 12 9 43 38 +5 48
10 Preston NE 33 12 12 9 40 37 +3 48
11 Bristol City 33 13 8 12 45 41 +4 47
12 Southampton 33 12 11 10 49 45 +4 47
13 QPR 33 13 8 12 46 47 -1 47
14 Swansea 33 13 6 14 39 39 0 45
15 Stoke City 33 12 8 13 36 31 +5 44
16 Sheffield Utd 32 13 3 16 45 45 0 42
17 Charlton Athletic 33 10 10 13 32 42 -10 40
18 Norwich 33 11 6 16 43 44 -1 39
19 Portsmouth 32 10 9 13 33 41 -8 39
20 Blackburn 33 10 8 15 31 41 -10 38
21 West Brom 33 9 7 17 32 49 -17 34
22 Leicester 33 10 9 14 46 53 -7 33
23 Oxford United 33 6 11 16 28 44 -16 29
24 Sheff Wed 32 1 8 23 19 64 -45 -7
Athugasemdir
banner