Það fóru tveir leikir fram í Lengjubikar kvenna í kvöld þar sem Keflavík lagði ÍA að velli í B-deild.
Staðan var markalaus í leikhlé í Akraneshöllinni en fjögur mörk litu dagsins ljós í síðari hálfleiknum.
Ariela Lewis skoraði fyrsta markið á 52. mínútu og tvöfaldaði Eva Dís Sighvatsdóttir forystuna áður en Lilja Björg Ólafsdóttir minnkaði muninn skömmu síðar.
Nær komust Skagakonur þó ekki og innsiglaði Ariela sigur Keflvíkinga á 70. mínútu. Lokatölur 1-3.
Keflavík er með sex stig eftir tvær umferðir og ÍA með eitt stig.
Fylkir vann þá þægilegan sigur á KÞ er liðin mættust á Fylkisvelli í C-deildinni. Karen Dís Vigfúsdóttir reyndist atkvæðamest í 6-0 sigri.
ÍA 1 - 3 Keflavík
0-1 Ariela Lewis ('52)
0-2 Eva Dís Sighvatsdóttir ('64)
1-2 Lilja Björg Ólafsdóttir ('66)
1-3 Ariela Lewis ('70)
Fylkir 6 - 0 KÞ
1-0 Elísa Björk Hjaltadóttir ('18)
2-0 Eva Stefánsdóttir ('38)
3-0 Karen Dís Vigfúsdóttir ('55)
4-0 Hildur Anna Brynjarsdóttir ('61)
5-0 Emilía Sif Sævarsdóttir ('78)
6-0 Karen Dís Vigfúsdóttir ('84)
Athugasemdir


