Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fös 20. febrúar 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Courtois í eigendahóp Le Mans
Mynd: EPA
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid og belgíska landsliðsins, hefur keypt hlut í franska B-deildarliðinu Le Mans en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

Courtois kemur inn í ansi huggulegan eigendahóp, en hann fjárfesti í félaginu ásamt tennisspilaranum Novak Djokovic og ökuþórunum Kevin Magnussen og Felipe Massa.

Brasilíski fjárfestingahópurinn Outfield á stærstan hluta í Le Mans, en hlutur Courtois kemur ekki fram í tilkynningu félagsins.

Le Mans átti ótrúlegt síðasta tímabil. Það sat um tíma í 15. sæti C-deildarinnar, en náði í lok tímabils að tryggja sig upp í B-deildina.

Í haust tók það upp þráðinn frá því sem var horfið og er nú í fimmta sæti B-deildarinnar og í góðum möguleika á að komast upp í A-deildina.

Kylian Mbappe, samherji Courtois hjá Real Madrid, á einmitt líka hlut í frönsku félagi. Hann á 80 prósent hlut í Caen, sem leikur í C-deildinni, en talið er að hann hafi greitt um 15-20 milljónir dollara fyrir hlut sinn árið 2024 af Oaktree Capital.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner