Brasilíska stórstjarnan Neymar er að íhuga að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið, en hann er snéri aftur til vallar á dögunum eftir að hafa gengist undir minniháttar aðgerð á hné fyrir jól. Brasilíska tímabilið endar í desember.
Neymar leikur fyrir uppeldisfélag sitt Santos og vonast til að komast með brasilíska landsliðinu á HM. Hann er orðinn 34 ára gamall og kom með beinum hætti að 15 mörkum í 28 leikjum með Santos í fyrra.
„Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, ég veit ekki hvernig næsta ár verður. Kannski vil ég leggja skóna á hilluna þegar desember rennur í garð. Ég lifi bara frá ári til árs á þessum tímapunkti ferilsins," segir Neymar.
„Við sjáum til hvað hjartað mitt segir þegar tekur að líða á árið. Þetta er mjög mikilvægt ár, ekki bara fyrir Santos heldur líka fyrir brasilíska landsliðið útaf því að það er HM. Ég vil gefa mig allan í þetta tímabil."
Neymar er markahæsti leikmaður í sögu brasilíska landsliðsins með 79 mörk í 128 leikjum og hefur tekið þátt í þremur heimsmeistaramótum á ferlinum, án þess að takast að sigra keppnina.
16.02.2026 16:30
Neymar spilaði sinn fyrsta leik eftir aðgerðina
Athugasemdir



