Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   fim 19. febrúar 2026 20:26
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild kvenna: Wolfsburg í 8-liða úrslit - Mæta sigursælasta liðinu
Kvenaboltinn
Wolfsburg er komið í 8-liða úrslit
Wolfsburg er komið í 8-liða úrslit
Mynd: EPA
Juventus 0 - 2 Wolfsburg (2-4, samanlagt)
0-1 Vivien Endemann ('18 )
0-2 Cora Zicai ('90 )

Wolfsburg, eitt sigursælasta lið í kvennaflokki í Meistaradeild Evrópu er komið áfram í 8-liða úrslit keppninnar eftir að hafa unnið Juventus, 2-0, í kvöld.

Vivien Endemann fékk sendingu inn fyrir á 18. mínútu og setti boltann auðveldlega framhjá markverði Juventus áður en Cora Zicai sendi Wolfsburg örugglega áfram með marki seint í uppbótartíma.

Liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum og samanlagt því 4-2 hjá Wolfsburg.

Wolfsburg mun mæta sigursælasta liði keppninnar frá upphafi, Lyon, í 8-liða úrslitum en þessi lið hafa mæst fjórum sinnum í úrslitum keppninnar frá 2013.

Lyon hefur unnið keppnina oftast eða átta sinnum á meðan Wolfsburg hefur unnið hana tvisvar.
Athugasemdir
banner
banner
banner