Ástralski þjálfarinn Ange Postecoglou segist hafa verið með stjörnur í augunum þegar hann gekk í gegnum leikmannagöngin í fyrsta leiknum sem hann stýrði á Anfield.
Postecoglou kom í ensku úrvalsdeildina árið 2023 er hann tók við Tottenham.
Í maí árið 2024 stýrði hann Tottenham í 4-2 tapi gegn Liverpool, en þar upplifði hann augnablik sem hann mun seint og jafnvel aldrei gleyma.
Hann heyrði mann kalla á eftir sér í leikmannagöngunum og var agndofa þegar hann sneri sér við.
„Ég sneri mér við og þá er þett Sir Kenny (Dalglish). Ég labbaði í gegnum göngin á Anfield með Kenny Dalglish, gaurnum sem ég var með plaköt af á veggnum hjá mér,“ sagði Postecoglou í þættinum The Overlap.
Dalglish var einn af bestu leikmönnum heims á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Hann varð sex sinnum Englandsmeistari með liðinu og vann Evrópukeppni meistaraliða þrisvar sinnum.
Brasilíska goðsögnin Pele valdi Dalglish á lista yfir 100 bestu leikmenn sögunnar í samstarfi við alþjóðafótboltasambandinu, FIFA, árið 2004. Þá varð Dalglish annar í kjöri Ballon d'Or árið 1983.
Athugasemdir




