Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   fim 19. febrúar 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Hefði átt að fá fleiri tækifæri til að sanna mig"
'Sé ekki eftir þessari ákvörðun í dag'
'Sé ekki eftir þessari ákvörðun í dag'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á að baki 41 leik fyrir yngri landsliðin og einn fyrir A-landsliðið.
Á að baki 41 leik fyrir yngri landsliðin og einn fyrir A-landsliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Hrafn Róbertsson gekk í raðir Värnamo í Svíþjóð eftir rúmt ár hjá Istra í Króatíu. Värnamo er í sænsku B-deildinni eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Logi, sem er fæddur árið 2004 og er lykilmaður í U21 landsliðsmaður, ræddi um tímann í Króatíu við Fótbolta.net.

„Auðvitað var ég ekki sáttur með spiltímann minn hjá Istra."

„Ég tel að ég hefði átt að fá fleiri tækifæri til þess að sanna mig því ég sýndi það á æfingum og í þeim leikjum sem ég spilaði að ég var full fær um að spila með liðinu,"
segir Logi Hrafn sem fór til Króatíu frá uppeldisfélaginu FH eftir tímabilið 2024.

Hann kom við sögu í 17 leikjum með Istra, byrjaði fimm leiki og kom tólf sinnum inn á.

Hann var spurður hvort hann sæi eftir því að hafa samið í Króatíu og hvort hann myndi mæla með þessu skrefi fyrir aðra.

„Ég lærði helling á þessu ári bæði innan sem utan vallar og sé ekki eftir þessari ákvörðun í dag."

„Þetta er hörku deild stórt svið og virkilega góðir leikmenn svo ég myndi alveg mæla með þessu skrefi þó það hafa ekki beint gengið upp hjá mér mínútulega séð."

„Ég átti í góðu sambandi við alla hjá klúbbnum svo viðskilnaðurinn er góður."

„Ég er mjög sáttur með skrefið sem ég er að taka núna og tel það vera rétta ákvörðun,"
segir Logi.
Athugasemdir
banner
banner
banner