Framherjinn Yoane Wissa verður að öllum líkindum ekki með Newcastle United gegn Manchester City er liðin eigast við á Etihad-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni á morgun en þetta sagði Eddie Howe, stjóri félagsins, á fréttamannafundi í morgun.
Wissa fékk slæmt högg á æfingu liðsins og verður hann líklega ekki klár fyrr en um miðja viku þegar Newcastle mætir Qarabag í seinni leiknum í umspili Meistaradeildar Evrópu.
Newcastle er þegar án fyrirliðans Bruno Guimaraes sem er að glíma við meiðsli aftan í læri en áætlað er að hann mæti aftur á völlinn eftir tvo mánuði.
Tino Livramento er í endurhæfingu og mun ekki snúa aftur fyrr en í byrjun mars og þá er Lewis Miley frá næstu vikur.
Góðu fréttirnar fyrir Newcastle eru þær að hollenski miðvörðurinn Sven Botman ætti að ná leiknum.
„Vonandi er betra að frétta af Sven Botman og að hann geti verið með og í kringum leikinn. Það er aðeins lengra í Miley,“ sagði Howe á fundinum.
Athugasemdir




