Enski miðjumaðurinn Mason Mount er að nálgast endurkomu með Manchester United en hann hefur ekki verið með liðinu í síðustu fjórum leikjum.
Mount hefur verið í vandræðum með meiðsli síðustu ár en hann hefur aðeins leikið rúmar 900 mínútur þessari leiktíð.
Á þessum mínútum hefur hann skorað þrjú mörk. Hann hefur ekki spilað í síðustu fjórum leikjum.
Hann hefur verið meiddur í síðustu þremur og var síðan á bekknum gegn Arsenal í lok mánaðar en Michael Carrick, stjóri United, segist styttast í hann og Matthijs De Ligt, sem hefur verið frá síðan í desember.
„Mason (Mount) er að færast nær endurkomu. Við höfum verið þolinmóðir með hann.“
„Við viljuma ekki ýta á hann. Við viljum fá hann til baka í formi og það styttist í það sem eru góðar fréttir fyrir okkur.“
„Mat (Matthijs de Ligt) er að vinna að því að snúa aftur. Hann er aðeins á eftir Mason,“ sagði Carrick á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir


