Bikarmeistarar Crystal Palace gerðu óvænt 1-1 jafntefli við Zrinjski Mostar í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildarinnar í gær en það var ekkert svo óvænt ef horft er á árangur breskra liða í bosnísku borginni.
Ismaila Sarr skoraði mark Palace í fyrri hálfleiknum en heimamenn jöfnuðu snemma í þeim síðari.
Palace er fimmta breska liðið sem mistekst að ná í sigur í Mostar.
Árið 1974 tapaði Derby County fyrir Velez Mostar, 4-1, sem var þá hluti af gömlu Júgóslavíu. Sama tímabil varð Derby enskur deildarmeistari. Árið 1988 tapaði skoska félagið Hearts fyrir sama liði, 2-1.
Partizan lék í Mostar þegar liðið lagði Celtic að velli, 2-1, og árið 2023 gerði Aston Villa jafntefli við Zrinjski.
Þetta á ekki bara við um bresk lið. Breiðablik gerði 1-1 jafntefli við liðið í forkeppni Evrópudeildarinnar á þessari leiktíð og tapaði gegn þeim á sama stigi keppninnar tímabilið 2023-2024.
Athugasemdir



