Kingsley Coman og Cristiano Ronaldo tengdu frábærlega í sádi-arabíska boltanum í dag til að hjálpa Al-Nassr að klifra upp á topp deildarinnar.
Coman lagði tvö mörk upp fyrir Ronaldo í 4-0 sigri gegn Al-Hazem og skoraði sjálfur eitt mark eftir undirbúning frá Joao Félix. Brasilíska ungstirnið Angelo komst einnig á blað í sigrinum þægilega.
Mohamed Simakan, Bento, Sadio Mané og Marcelo Brozovic voru einnig í ógnarsterku byrjunarliði Al-Nassr sem er með 55 stig eftir 22 umferðir, einu stigi meira heldur en Al-Hilal sem gerði jafntefli við ríkjandi meistara Al-Ittihad.
Malcom tók forystuna fyrir Al-Hilal snemma leiks og fékk Hassan Kadesh að líta beint rautt spjald í liði Al-Ittihad skömmu síðar, en meistararnir gáfust þó ekki upp.
Tíu leikmönnum Al-Ittihad tókst að halda ógnarsterku liði Al-Hilal í skefjum og skora jöfnunarmark snemma í síðari hálfleik. Houssem Aouar var þar á ferðinni og hélst staðan 1-1 til leiksloka.
Al-Hilal tókst ekki að nýta sér liðsmuninn í þessum stjörnum prýdda slag þar sem Karim Benzema var í byrjunarliði Al-Hilal. Hann mætti sínum fyrrum liðsfélögum í fyrsta sinn eftir dramatísk félagaskipti frá Al-Ittihad á dögunum.
Sergej Milinkovic-Savic, Rúben Neves, Theo Hernández, Kalidou Koulibaly og Yassine Bounou voru í byrjunarliði Al-Hilal.
Í byrjunarliði Al-Ittihad mátti finna Danilo Pereira, Fabinho, Moussa Diaby, Youssef En-Nesyri og markvörðinn Predrag Rajkovic.
Al-Hilal er í öðru sæti með 54 stig, á meðan Al-Ittihad siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar með 38 stig.
Að lokum tókst Alexandre Lacazette og félögum í liði Neom SC að sigra á útivelli gegn tíu leikmönnum Al-Khaleej.
Heimamenn í liði Al-Khaleej misstu mann af velli snemma leiks en náðu að halda leiknum markalausum allt þar til á lokamínútunum, þegar þeir fengu vítaspyrnu dæmda á sig.
Lacazette skoraði af punktinum og tryggði sigur fyrir Neom, sem er um miðja deild með 31 stig eftir 22 umferðir.
Al-Nassr 4 - 0 Al-Hazem
1-0 Cristiano Ronaldo ('13)
2-0 Kingsley Coman ('30)
3-0 Angelo ('77)
4-0 Cristiano Ronaldo ('79)
Al-Hilal 1 - 1 Al-Ittihad
1-0 Malcom ('5)
1-1 Houssem Aouar ('53)
Rautt spjald: Hassan Kadesh, Al-Ittihad ('9)
Al-Khaleej 0 - 1 Neom SC
0-1 Alexandre Lacazette ('88, víti)
Rautt spjald: Dimitrios Kourbelis, Al-Khaleej ('15)
Athugasemdir


