Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 17:21
Ívan Guðjón Baldursson
Tómas Bent byrjaði í dýrmætum sigri - Jafntefli hjá FCK
Mynd: Hearts/Skjáskot
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Cavese
Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts gegn Falkirk í skoska boltanum í dag.

Hann lék nánast allan leikinn í 1-0 sigri sem kemur Hearts aftur í fimm stiga forystu á toppi deildarinnar.

Rangers er í öðru sæti með leik til góða og þar á eftir kemur Celtic með tvo leiki til góða.

Aberdeen tapaði þá heimaleik gegn Dundee FC í neðri hlutanum en Kjartan Már Kjartansson var ekki í hóp.

Hinn bráðefnilegi Viktor Bjarki Daðason lék fyrri hálfleikinn í jafntefli hjá FCK í danska boltanum. Kaupmannahöfn heimsótti OB til Óðinsvéa og lenti undir í fyrri hálfleik og var Viktori Bjarka fórnað ásamt Thomas Delaney til að gera tvöfalda breytingu í leikhléinu.

Lokatölur urðu 2-2 eftir jafnan og spennandi slag og er FCK afar óvænt í neðri hluta deildarinnar með 29 stig eftir 21 umferð. Einu stigi fyrir ofan OB.

Í næstefstu deild í Þýskalandi lék Valgeir Lunddal Friðriksson síðari hálfleikinn í naumu tapi hjá Fortuna Düsseldorf á útivelli gegn toppliði Darmstadt. Valgeir og félagar eru tveimur stigum fyrir ofan fallsæti með 25 stig eftir 23 umferðir.

Mikael Neville Anderson spilaði þá allan leikinn í tapi hjá Djurgården á heimavelli í sænska bikarnum. Djurgården tapaði óvænt gegn Falkenberg í fyrstu umferð og þarf núna að sigra gegn Brommapojkarna og IFK Skovde til að eiga möguleika á toppsæti riðilsins. Göteborg og Östersund skildu jöfn en Kolbeinn Þórðarson var ekki í hóp í Gautaborg.

Á Ítalíu kom Sveinn Aron Guðjohnsen við sögu í tapi hjá Cavese gegn Trapani. Sveinn Aron fékk að spila síðasta hálftímann en tókst ekki að skora, svo lokatölur urðu 2-0. Cavese er í fallsæti í Serie C, með 28 stig eftir 28 umferðir - einu stigi frá öruggu sæti.

Í Serie B vann hafði topplið Venezia betur gegn botnliði Pescara en Bjarki Steinn Bjarkason var utan hóps. Feneyingar eru á góðri leið með að tryggja sér sæti í efstu deild á ný eftir

Að lokum voru hvorki Benoný Breki Andrésson né Jason Daði Svanþórsson í leikmannahópum hjá Stockport County og Grimsby Town í ensku neðri deildunum. Stockport lagði Wigan að velli í League One á meðan Grimsby tapaði fyrir Bristol Rovers í League Two.

Hearts 1 - 0 Falkirk

Aberdeen 2 - 3 Dundee

Odense 2 - 2 Köbenhavn

Darmstadt 2 - 1 Dusseldorf

Djurgården 0 - 2 Falkenberg

Göteborg 0 - 0 Östersund

Trapani 2 - 0 Cavese

Venezia 3 - 2 Pescara

Stockport 4 - 2 Wigan

Bristol Rovers 3 - 1 Grimsby

Athugasemdir
banner
banner
banner