Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 18:47
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Þægilegt fyrir KÁ og Dalvík/Reyni
Mynd: Dalvík/Reynir
Það fóru fimm leikir fram í B-deild karla í Lengjubikarnum í dag og skóp KÁ stærsta sigurinn.

Hafnfirðingar rúlluðu yfir Kormák/Hvöt í leik þar sem Nikola Dejan Djuric var atkvæðamestur með tvennu, en heimamenn gerðu út um viðureignina með fjórum mörkum á fyrsta hálftíma leiksins.

Lokatölur urðu 5-1 og er KÁ með þrjú stig eftir tvo fyrstu leiki sína.

Sævar Þór Fylkisson setti þá tvennu í þægilegum sigur Dalvíkur/Reynis gegn Tindastól og skoraði Guðni Sigþórsson eina mark leiksins í sigri Magna gegn KFA í Fjarðabyggðarhöllinni.

Óðinn Jóhannsson skoraði dramatískt sigurmark fyrir Sandgerði á heimavelli og lögðu Ólsarar tíu leikmenn KFG örugglega að velli.

KÁ 5 - 1 Kormákur/Hvöt
1-0 Fannar Óli Friðleifsson ('4)
2-0 Nikola Dejan Djuric ('13)
3-0 Birkir Brynjarsson ('23)
4-0 Nikola Dejan Djuric ('29)
4-1 Moussa Ismael Sidibe Brou ('56)
5-1 Theodór Ernir Geirsson ('90)

Tindastóll 0 - 3 Dalvík/Reynir
0-1 Kristján Breki Pétursson ('12)
0-2 Sævar Þór Fylkisson ('21
0-3 Sævar Þór Fylkisson ('46)
Rautt spjald: Þorri Jón Níelsson, Dalvík/Reynir ('90)

KFA 0 - 1 Magni
0-1 Guðni Sigþórsson ('14)
Rautt spjald: Ólafur Bernharð Hallgrímsson, KFA ('79)

Reynir Sandgerði 1 - 0 Sindri
1-0 Óðinn Jóhannsson ('90)

Víkingur Ó. 4 - 2 KFG
1-0 Sveinn Ingi Þorbjörnsson, sjálfsmark ('3)
2-0 Kristófer Áki Hlinason ('37)
3-0 Asmer Begic ('59)
3-1 Sölvi Snær Sólberg Auðunsson ('64)
4-1 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('77)
4-2 Ólafur Viðar Sigurðsson ('91)
Rautt spjald: Arnar Ingi Valgeirsson, KFG ('53)
Athugasemdir
banner
banner