Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 20:36
Brynjar Ingi Erluson
Stelpurnar hennar Betu gerðu aftur jafntefli við Skota
Kvenaboltinn
Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Belgíu
Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Belgíu
Mynd: EPA
Elísabet Gunnarsdóttir og stöllur hennar í belgíska kvennalandsliðinu gerðu aftur jafntefli við Skotland í undankeppni heimsmeistaramótsins í kvöld.

Þjóðirnar gerðu 1-1 jafntefli á dögunum þar sem Skotar náðu jöfnunarmarki undir lok leiks, en í kvöld enduðu leikar 0-0 á heimavelli Belga.

Staðan er þannig að Skotland og Belgía eru jöfn að stigum í D-riðli B-deildar með 8 stig, en Skotar með betri markatölu.

Markatalan mun líklega skipta gríðarlega miklu máli í þessum riðli, en Belgía mætir Lúxemborg í tveimur leikjum í júní.
Slapp
banner
banner