Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
   lau 18. apríl 2026 21:29
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Ekki úrslitin sem Hákon og Lille vildu
Hákon Arnar lék allan leikinn með Lille
Hákon Arnar lék allan leikinn með Lille
Mynd: EPA
Hákon Arnar Haraldsson og hans menn í Lille gerðu markalaust jafntefli við Nice í 30. umferð frönsku deildarinnar í kvöld. Þessi úrslit gera ekki mikið fyrir Lille sem er í baráttu um Meistaradeildarsæti.

Lille þarf á öllum stigum að halda til þess að komast í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

Það hafði unnið fjóra leiki í röð og ekki tapað síðan í febrúar fram að leiknum í kvöld.

Jafntefli gegn liði eins og Nice væri eflaust fín úrslit undir eðlilegustu kringumstæðum, en ekki á þessum tímapunkti því nú fá Lyon og Rennes tækifæri til að komast inn í baráttuna.

Hákon Arnar lék allan leikinn með Lille í kvöld sem er í 3. sæti deildarinnar með 54 stig og aðeins þriggja stiga forystu um Meistaradeildarsæti.

Það sem hjálpaði Lille þó var 2-0 sigur Lorient á Marseille. Þannig helst Marseille áfram í 4. sæti með 52 stig og enn fyrir neðan Lille, en það lið sem hafnar í 4. sæti fer í umspil um sæti í Meistaradeildina á meðan efstu þrjú liðin fara beint í deildarkeppnina.

Lille 0 - 0 Nice

Lorient 2 - 0 Marseille
1-0 Panos Katseris ('28 )
2-0 Bamba Dieng ('58 )

Angers 1 - 1 Le Havre
0-1 Sofiane Boufal ('13 )
1-1 Prosper Peter ('28 )
Rautt spjald: Arouna Sangante, Le Havre ('75)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner