Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   lau 18. apríl 2026 20:49
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Roma mistókst að komast upp í fimmta sæti
Mario Hermoso skoraði frábært jöfnunarmark og var nálægt því að gera sigurmark í þeim síðari
Mario Hermoso skoraði frábært jöfnunarmark og var nálægt því að gera sigurmark í þeim síðari
Mynd: EPA
Roma 1 - 1 Atalanta
0-1 Nikola Krstovic ('12 )
1-1 Mario Hermoso ('45 )

Roma og Atalanta skildu jöfn, 1-1, í 33. umferð Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Rómverjar gátu komist upp í fimmta sætið og upp að hlið Juventus í baráttunni um Evrópusæti, en nýttu ekki það tækifæri.

Nikola Kristovic skoraði fyrir Atalanta á 12. mínútu leiksins en undir lok hálfleiksins skoraði miðvörðurinn Mario Hermoso með laglegu skoti á lofti eftir skallasendingu frá Devyne Rensch.

Roma fékk nokkra sénsa til að skora í seinni. Donyell Malen og Stephan El Shaarawy fengu góð færi sem Carnesecchi varði í markinu og þá var Hermoso nálægt því að gera annað mark sitt en skalli hans í þverslá.

Heimamenn reyndu allt en þurftu á endanum að sætta sig við jafntefli. Roma er í 6. sæti með 58 stig á meðan Atalanta er í 6. sæti með 54 stig þegar fimm umferðir eru eftir.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 37 27 5 5 86 32 +54 86
2 Napoli 37 22 7 8 57 36 +21 73
3 Roma 37 22 4 11 57 31 +26 70
4 Milan 37 20 10 7 52 33 +19 70
5 Como 37 19 11 7 61 28 +33 68
6 Juventus 37 19 11 7 59 32 +27 68
7 Atalanta 37 15 13 9 50 35 +15 58
8 Bologna 37 16 7 14 46 43 +3 55
9 Lazio 37 13 12 12 39 39 0 51
10 Udinese 37 14 8 15 45 47 -2 50
11 Sassuolo 37 14 7 16 46 49 -3 49
12 Torino 37 12 8 17 42 61 -19 44
13 Parma 37 10 12 15 27 46 -19 42
14 Genoa 37 10 11 16 41 50 -9 41
15 Fiorentina 37 9 14 14 40 49 -9 41
16 Cagliari 37 10 10 17 38 52 -14 40
17 Lecce 37 9 8 20 27 50 -23 35
18 Cremonese 37 8 10 19 31 53 -22 34
19 Verona 37 3 12 22 25 59 -34 21
20 Pisa 37 2 12 23 25 69 -44 18
Slapp
banner