Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson var með bestu mönnum Hannover í 1-1 jafnteflinu gegn toppliði Paderborn í þýsku B-deildinni í kvöld.
Stefán er orðinn fastamaður og einn af fyrstu mönnum á blað í lið Hannover síðan hann kom frá Preston í vetrarglugganum.
Hann meiddist eftir síðasta leik Hannover en náði að jafna sig í tæka tíð fyrir stórslaginn gegn Paderborn.
FotMob gefur Stefáni 7 í einkunn en aðeins tveir liðsfélagar hans voru með hærri einkunn í leiknum.
Sterk frammistaða hjá landsliðsmanninum og Hannover sem er í 4. sæti deildarinnar með 54 stig á meðan Paderborn er á toppnum með 58 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.


