Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
   fim 25. febrúar 2016 22:27
Magnús Már Einarsson
Margrét Lára: Skemmtilegra að hafa fleiri lið í baráttunni
Kvenaboltinn
Margrét Lára fyrir leik í kvöld.
Margrét Lára fyrir leik í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er gaman að fá þessa tilfinningu, að vinna bikara," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir við Fótbolta.net eftir 1-0 sigur Vals á Fylki

Margrét Lára skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu en hún er komin heim úr atvinnumennsku áftur í Val. Valur hefur fengið fleiri sterkar landsliðskonur í vetur og liðið setur markið hátt í sumar.

„Við erum að reyna að búa til gott lið og erum á ágætis leið með það. Það er samt sem áður mikið verk framundan. Þetta eru spennandi tímar, vonandi getum við byggt ofan á þetta og haldið áfram."

Margrét Lára býst við hörkukeppni um Íslandsmeistaratitilinn í sumar.

„Það er fullt af flottum liðum, mikill metnaður hjá liðunum og flottir þjálfarar."

„Mér finnst bilið hafa jafnast og það eru fleiri lið sem blanda sér í baráttuna. Það er miklu skemmtilegra."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner