Marc-andre ter Stegen, markvörður Barcelona, segist ekki vera á förum frá félaginu í sumar.
Barcelona er að ganga frá kaupum á spænska markverðinum Joan Garcia frá nágrönnnunum í Espanyol og er þá einnig að framlengja við Wojciech Szczesny.
Umræða hefur skapast um framtíð Ter Stegen sem var frá stærstan hluta síðasta tímabils vegna hnémeiðsla, en hann vill sjálfur meina að hann verði áfram á næsta tímabili.
Ter Stegen hefur verið aðalmarkvörður Barcelona frá 2014 og spilað yfir 400 leiki.
„Það hefur enginn talað við mig. Ég veit að ég verð áfram hjá Barcelona á næsta ári. Barca er eitt af stærstu félögum heims, svo það er eðlilegt að það sé samkeppni.“
„Staðan er óbreytt hjá mér. Ég er ótrúlega spenntur fyrir næsta tímabili með ungu, kraftmiklu og hungruðu liði,“ sagði Ter Stegen.
Garcia mun væntanlega ganga í raðir Barcelona síðar í þessari viku, en áætlað er að hann verði lánaður út eitt tímabil. Ensk úrvalsdeildarfélög hafa sýnt honum áhuga, en þar má nefna Arsenal og Newcastle.
Athugasemdir