Klukkan 19:15 hefst stórleikur umferðarinnar þegar Stjarnan og Breiðablik mætast á Samsungvellinum í Garðabæ.
Stjarnan situr fyrir leikinn í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig. Gestirnir úr Kópavoginum eru í öðru sæti deildarinnar með 23.stig. Stjarnan vann ÍA í síðustu umferð á meðan Breiðablik gerði 1-1 jafntefli við Fram.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 4 Breiðablik
Jökull Elísarbetarson þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu á sigurleiknum gegn ÍA. Örvar Logi Örvarsson kemur inn í liðið og fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson fær sér sæti á bekknum
Halldór Árnason þjálfari Breiðablik gerir tvær breytingar frá jafnteflinu gegn Fram. Ásgeir Helgi Orrason og Kristinn Steindórsson koma inn í liðið fyrir Höskuld Gunnlaugsson og Tobias Thomsen sem eru báðir í leikbanni í kvöld.
Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Samúel Kári Friðjónsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
23. Benedikt V. Warén
29. Alex Þór Hauksson
32. Örvar Logi Örvarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
Byrjunarlið Breiðablik:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
6. Arnór Gauti Jónsson
8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman
Athugasemdir