Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 17:24
Elvar Geir Magnússon
Amorim: Kannski bara gott að það var baulað á okkur
Baulað var á leikmenn Manchester United.
Baulað var á leikmenn Manchester United.
Mynd: EPA
Baulað var á Manchester United eftir að liðið tapaði 1-0 gegn ASEAN All-Stars, úrvalsliði frá Suð-austurhluta Asíu, í æfingaleik í Kúala Lúmpúr í Malasíu í dag.

Eftir afskaplega erfitt tímabil voru alls engin batamerki á United í þessum leik. Það var yfir 30 gráðu hiti meðan leikurinn fór fram og eftir að honum lauk var baulað í stúkunni.

„Ég hef fundið til sektar vegna frammistöðu liðsins alveg síðan ég tók við liðinu. Kannski var þetta baul eitthvað sem við þurftum því stuðningsmennirnir hafa verið með okkur eftir alla tapleikina í úrvalsdeildinni," sagði Amorim eftir leikinn.

Amorim var spurður út í Matheus Cunha sem virðist vera að ganga í raðir félagsins frá Wolves.

„Þið þurfið bara að bíða og sjá. Þetta er eitthvað fyrir ykkur fjölmiðlamenn að ræða um. Ég mun ekki staðfesta neitt. Ég hef engar fréttir. Það verða einhverjar breytingar, bíðum og sjáum."


Athugasemdir
banner