Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 19:02
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Naumir sigrar hjá Val og KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er nóg um að vera í Bestu deild karla í dag þar sem öllum leikjum níundu umferðar er lokið, nema einum. Í dag tókst Val og KA að næla sér í dýrmæta sigra á útivelli.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  2 Valur

Afturelding 0 - 2 Valur
0-1 Patrick Pedersen ('34, víti)
0-2 Aron Jóhannsson ('41)

Patrick Pedersen og Aron Jóhannsson sáu um markaskorunina er Valur afgreiddi nýliða Aftureldingar. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik en leikurinn sjálfur var nokkuð jafn þar sem heimamönnum tókst ekki að nýta færin sín.

Staðan var markalaus fram að 34. mínútu þegar Patrick skoraði úr vítaspyrnu eftir afar umdeildan vítaspyrnudóm. Þetta var fyrsta marktilraun Valsara í leiknum en Aron tvöfaldaði forystuna skömmu síðar með þokkalegu heppnismarki.

Marktilraun Arons virtist vera á leið framhjá en boltinn hæfði varnarmann og breytti um stefnu til að leka í netið. Staðan var því 0-2 eftir nokkuð tíðindalítinn fyrri hálfleik þar sem heimamenn í liði Aftureldingar höfðu verið sterkari.

Síðari hálfleikurinn var afar bragðdaufur þar sem lítið var um færi. Lokatölur 0-2 fyrir Val sem er í fjórða sæti með 15 stig eftir 9 umferðir - fimm stigum á eftir toppliði Víkings R.

Afturelding er í fallsæti með 10 stig eftir þetta tap.



Fram 1 - 2 KA
1-0 Vuk Oskar Dimitrijevic ('19)
1-1 Ásgeir Sigurgeirsson ('45+2)
1-2 Jóan Símun Edmundsson ('92)

Lestu um leikinn

Á sama tíma tók Vuk Oskar Dimitrijevic forystuna fyrir Fram sem fékk KA í heimsókn frá Akureyri. Vuk skoraði fyrsta mark leiksins á 19. mínútu eftir einfalda sókn upp kantinn. Róbert Hauksson fékk langa sendingu upp kantinn og gaf fastan bolta inn í vítateiginn þar sem Vuk var mættur til að klára.

Framarar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og komust nálægt því að tvöfalda forystuna fyrir leikhlé en tókst ekki. Þess í stað svöruðu Akureyringar fyrir sig með jöfnunarmarki þegar Ásgeiri Sigurgeirssyni tókst að skora með föstu skoti í þaknetið.

Ásgeir jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks svo staðan var 1-1 þegar leikmenn gengu til búningsklefa. Það fóru þrír leikmenn meiddir af velli í fyrri hálfleik, þar sem Már Ægisson leikmaður Fram var sendur beint á spítala eftir höfuðmeiðsli.

Leikmenn héldu áfram að meiðast í síðari hálfleik en hvorugu liði tókst að gera sigurmarkið fyrr en í uppbótartímanum.

Bæði lið fengu frábær tækifæri til að taka forystuna á lokakafla leiksins en klúðruðu hverju færinu á fætur öðru. Leikmenn kepptust við að klúðra góðum færum þar til Færeyingurinn knái Jóan Símun Edmundsson stal þremur stigum fyrir KA-menn á 92. mínútu.

Jóan skoraði eftir fyrirgjöf frá kantinum sem Kennie Chopart náði að skalla áfram á Jóan sem negldi boltanum i netið af stuttu færi.

Staðan var orðin 1-2 og komst Vuk í dauðafæri skömmu síðar, en fast skot hans fór af varnarmanni og í hornspyrnu sem varð ekkert úr. Lokatölur 1-2 fyrir KA eftir opinn og skemmtilegan slag gegn Fram.

Fram og KA eru bæði um miðja deild eftir þennan slag.
Athugasemdir
banner