Massimiliano Allegri virðist vera á leið aftur í ítalska boltann eftir árs fjarveru.
Þessi 57 ára gamli Ítali var rekinn frá Juventus fyrir ógnandi hegðun í garð dómara og blaðamanna eftir að hafa unnið ítalska bikarinn á síðustu leiktíð.
Þessi 57 ára gamli Ítali var rekinn frá Juventus fyrir ógnandi hegðun í garð dómara og blaðamanna eftir að hafa unnið ítalska bikarinn á síðustu leiktíð.
Fabrizio Romano greinir frá því að AC Milan sé í viðræðum við Allegri um að taka við liðinu af Sergio Conceicao.
Framtíð Antonio Conte hjá Napoli, sem vann deildartitilinn í ár, hefur verið í mikilli óvissu en Romano segir að Napoli vonist til að hann verði áfram. Allegri hefur einnig verið orðaður við Napoli.
Allegri stýrði Milan frá 2010-2014 en liðið vann ítölsku deildina undir hans stjórn árið 2011.
Athugasemdir