Chelsea vann sinn fyrsta titil í fjögur ár þegar liðið lagði Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Liðið vann síðast titil þegar liðið lyfti Meistaradeildarbikarnum eftir sigur á Man City árið 2021. Enzo Maresca, stjóri Chelsea, var að vonum ánægður eftir sigurinn í kvöld.
Liðið vann síðast titil þegar liðið lyfti Meistaradeildarbikarnum eftir sigur á Man City árið 2021. Enzo Maresca, stjóri Chelsea, var að vonum ánægður eftir sigurinn í kvöld.
„Ég er mjög stoltur og ánægður. Ég veit að stuðningsfólkið á þetta skilið, þau hafa beðið í nokkur ár. Félagið hefur sett mikinn pening í verkefnið svo þau hafa beðið líka," sagði Maresca.
„Vonandi er þetta bara byrjunin og við getum byrjað að byggja upp eitthvað mikilvægt. Við munum njóta í viku eða svo og þá getum við horft fram á veginn."
Athugasemdir