Víkingar halda toppsæti Bestu deildarinnar en þeir gerðu góða ferð til Ísafjarðar og unnu 1-0 útisigur. Eina markið kom af vítapunktinum. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, spjallaði við Fótbolta.net eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 1 Víkingur R.
´„Ég er virkilega sáttur. Við vorum að mæta mjög sterku liði, þeir hafa verið flottir í ár. Þeir eru hörkulið og erfitt að koma á Ísafjörð og sækja eitthvað. Okkur tókst það og ég er virkilega sáttur," segir Sölvi.
„Menn komu virkilega gíraðir og voru tilbúnir í slaginn. Við vitum að við verðum að vera tilbúnir að berjast og í slagsmál úti á velli. Við gerðum það vel. Mér fannst við vera með yfirhöndina þegar kom að návígjum."
„Eftir að við komumst yfir lokum við bara leiknum og hleypum þeim ekki í nein færi. Þetta var fagmannlega gert."
Sölvi gerði margar breytingar en liðið á leik gegn Breiðabliki strax á sunnudag.
„Það hafði ekkert með Breiðablik að gera. Það eru þrír leikir í einni viku svo við verðum að halda mönnum ferskum og rótera. Það tókst vel í dag, við náðum að hreyfa við liðinu og hvíla nokkra."
Í viðtalinu tjáir Sölvi sig einnig um meiðsli Sveins Gísla Þorkelssonar sem var ekki með í dag vegna smávægilegrar tognunar.
Athugasemdir