Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 15:00
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool setur háan verðmiða á Quansah
Mynd: EPA
Liverpool hefur sett 50 milljóna punda verðmiða á enska varnarmanninn Jarell Quansah, þó hann hafi fengið takmarkaðan spiltíma á tímabilinu.

Quansah er 22 ára gamall miðvörður sem byrjaði aðeins 13 af þeim 25 leikjum sem hann spilaði á tímabilinu.

Mikill áhugi er á Englendingnum og segir Lewis Steele hjá Daily Mail að félög þurfi að reiða fram 50 milljónir punda til að landa honum.

Varnarmaðurinn er á eftir Virgil van Dijk og Ibrahima Konate í goggunaröðinni og heldur ólíklegt að hann muni hafa betur í þeirri samkeppni.

Samkvæmt blaðamanninum David Lynch er talið mjög líklegt að Quansah fari í sumar og eru mörg félög í ensku úrvalsdeildinni og Þýskalandi áhugasöm, en verðmiðinn þykir of hár.

Quansah er samningsbundinn Liverpool til 2029 með möguleika á að framlengja samninginn um ár til viðbótar.
Athugasemdir