Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 11:49
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe leikmaður tímabilsins hjá Real Madrid
Mynd: Real Madrid
Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe hefur verið valinn besti leikmaðurinn á fyrsta tímabili sínu með spænska félaginu Real Madrid.

Mbappe kom til Real Madrid á frjálsri sölu frá Paris Saint-Germain síðasta sumar.

Það tók hann nokkra mánuði að aðlagast leik Madrídinga og var hann harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína fyrst um sinn, en tókst að klára tímabilið með stæl.

Frakkinn skoraði 43 mark í 56 leikjum í öllum keppnum og var markahæsti maður La Liga með 31 mark.

„Þetta er mikill heiður og frábært augnablik fyrir mig. Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum Real Madrid og fólkinu sem kaus mig. Fyrsta tímabilið á Spáni hefur verið ný reynsla fyrir mig sem leikmann og persónu.“

„Þegar ég kom þurfti ég að aðlagast liðinu, landinu, tungumálinu og menninguninni, en nú líður mér vel og það hef ég sýnt á vellinum. Ég er ótrúlega ánægður hjá Real Madrid,“
sagði Mbappe.
Athugasemdir
banner
banner