Fernando Hierro, yfirmaður íþróttamála hjá Al Nassr í Sádi-Arabíu, heldur í vonina um að Cristiano Ronaldo verði áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.
Ronaldo verður samningslaus í næsta mánuði en hann hefur ekki tekið ákvörðun varðandi framtíðina.
Portúgalinn hefur verið orðaður við Al Hilal, keppinauta Al Nassr, ásamt Monterrey, Wydad og Botafogo.
Hierro segist ekki hafa gefið upp von á að halda Ronaldo, sem virtist kveðja félagið á Instagram á dögunum. Talaði Ronaldo um að nú væri nýr kafli að hefjast og að hann ætlaði sér að halda áfram að skrifa söguna.
„Samningur Ronaldo hjá Al Nassr rennur út 30, júní. Við munum vinna hörðum höndum að því að framlengja samninginn svo hann geti haldið áfram að spila með okkur, en það eru mörg félög sem hafa áhuga á honum. Við erum í viðræðum og vonandi finnum við lausn.“
„Nærvera Ronaldo hefur verið verkefni þjóðarinnar frá byrjun. Hann opnaði fótboltann hér í landi fyrir heiminum og það er algerlega stórkostlegt að hann hafði hugrekkið til að koma og vera hér til þess að kynna heiminn fyrir sádi-arabísku deildinni. Þetta eru ótrúleg tímamót.“
„Síðan hann kom hafa margir heimsklassa leikmenn komið hingað. Hann opnaði allar dyr og síðan hefur fólkið í stjórnarstöðunum unnið frábært starf. Þeir eru áfram í sókn og við erum áfram í sambandi við Ronaldo varðandi það að framlengja samning hans og vonum auðvitað að hann verði áfram hjá okkur,“ sagði Hierro.
Ronaldo hefur verið ótrúlegur síðan hann kom fyrir þremur árum, en sóknarmaðurinn vann gullskóinn annað tímabilið í röð og er samtals með 93 mörk og 19 stoðsendingar í aðeins 105 leikjum í öllum keppnum.
Athugasemdir