Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Töpuðu bikarúrslitunum og falla niður um deild
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Reims 1 - 3 Metz
1-0 Ange Tia ('57)
1-1 Matthieu Udol ('78)
1-2 Alpha Toure ('110)
1-3 Gauthier Hein ('114)

Reims og Metz áttust við í úrslitaleik umspilsins um síðasta lausa sætið í efstu deild franska boltans í kvöld.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli Metz, sem endaði í þriðja sæti í næstefstu deild, og mættust á heimavelli Reims, sem endaði í þriðja neðsta sæti efstu deildar, í kvöld.

Fyrri leikurinn fór fram 21. maí og átti Reims svo úrslitaleik við stórveldið Paris Saint-Germain í franska bikarnum 24. maí. Reims tapaði þeim leik 3-0 og missti þannig af Evrópusæti.

Í kvöld tókst Reims svo ekki að bera sigur úr býtum gegn Metz. Staðan var jöfn eftir venjulegan leiktíma og sigruðu gestirnir í liði Metz með tveimur mörkum í framlengingu.

Þetta er gríðarlega svekkjandi fyrir Reims, sem hefði getað forðast umspilssæti með svo litlu sem jafntefli í einum af síðustu þremur deildarleikjum sínum. Þess í stað tapaði Reims síðustu þremur deildarleikjunum í röð og endaði þannig í umspilinu.

Reims var sterkari aðilinn gegn Metz í venjulegum leiktíma, en tókst ekki að koma í veg fyrir jöfnunarmark Matthieu Udol á 78. mínútu.

Framlengingin var nokkuð jöfn en Metz nýtti færin sín betur og endaði á að sigra. Ótrúlega svekkjandi fyrir Reims sem lék síðast í Ligue 2 fyrir sjö árum síðan.

Metz hefur verið að flakka mikið á milli tveggja efstu deilda franska boltans á síðustu árum, en liðið féll síðast í fyrra eftir tap í umspilinu.
Athugasemdir
banner