Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
banner
   fim 29. maí 2025 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leipzig setur rúmlega 90 milljón punda verðmiða á Sesko
Mynd: EPA
Arsenal er í leit að framherja fyrir næsta tímabil en Benjamin Sesko, framherji Leipzig, og Viktor Gyökeres, framherji Sporting, hafa verið orðaðir við félagið.

Sky Sports í Þýskalandi greindi frá því á dögunum að Arsenal væri í viðræðum við Leipzig.

The Telegraph greinir hins vegar frá því að Arsenal þurfi að opna veskið upp á gátt til að næla í slóvenska framherjann þar sem Leipzig hefur sett rúmlega 92 milljón punda verðmiða á Sesko.

Sesko skoraði 21 mark í 45 leikjum hjá Leipzig á nýliðnu tímabili en hann hefur alls skorað 39 mörk í 87 leikjum fyrir félagið.
Athugasemdir
banner