Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 22:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chelsea fyrsta liðið til að vinna alla stóru Evróputitlana
Mynd: EPA
Chelsea varð fyrsta liðið til að vinna alla stóru Evróputitlana í kvöld þegar liðið lagði Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Eftir slaka frammistöðu í fyrri hálfleik var ótrúlegur viðsnúningur á liðinu í seinni hálfleik. Abde Ezzalzouli kom Betis yfir en mörk frá Enzo Fernandez, Nicolas Jackson, Jadon Sancho og Moises Caicedo í seinni hálfleik tryggðu Chelsea sigurinn.

Liðið hefur unnið bæði Meistaradeildina og Evrópudeildina tvisvar en nú er Sambandsdeildarbikarinn kominn í skápinn.

Sambandsdeildin var fyrst sett á laggirnar árið 2021 og Chelsea er annað enska liðið á eftir West Ham til að vinna keppnina. Roma og Olympiakos hafa einnig unnið Sambandsdeildina.


Athugasemdir
banner