Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 17:04
Elvar Geir Magnússon
Sprautuðu á stuðningsmenn Chelsea með vatni
Óeirðalögreglan í Wroclaw.
Óeirðalögreglan í Wroclaw.
Mynd: EPA
Lögreglan í Wroclaw í Póllandi sprautaði vatni með háþrýstibúnaði á stuðningsmenn Chelsea til að hemja þá í aðdraganda úrslitaleiks Sambandsdeildarinnar.

Talsverð læti hafa verið í borginni og 28 hafa verið handteknir.

Einnig var notast við táragas af óeirðalögrelunni þegar stuðningsmenn Chelsea og Real Betis lentu saman í hópslagsmálum í gær. Donald Tusk forsætisráðherra Póllands segir ekkert svigrúm fyrir ofbeldi á götum borga landsins.

Slagsmál brutust út fyrir utan hinn skemmtilega Guinness bar sem stuðningsmenn íslenska landsliðsins sem fóru á umspilsleikinn gegn Úkraínu í Wroclaw þekkja margir hverjir.

Real Betis og Chelsea leika til úrslita í kvöld klukkan 19.



Athugasemdir
banner
banner