

„Mér fannst þetta frekar jafn leikur. Mér fannst þær sterkar og með hættulegar skyndisóknir en við þurfum bara að klára okkar færi. Koma krossum hraðar fyrir markið og slútta þessu sem við erum ekki alveg að ná að gera“ Sagði Kristrún Ýr Holm fyrirliði Keflavíkur um leikinn eftir 1-0 tap Keflavíkur gegn HK á heimavelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 1 HK
Sóknarleikur Keflavíkur var á löngum köflu bitlaus í kvöld og gekk liðinu erfiðlega oft að skapa sér færi og líkt og takmarkað sjálfstraust væri í liðinu er komið væri á síðasta þriðjung.
„Ég veit ekki alveg hvað við höldum. Við þurfum að vera aggressívari og grófari á síðasta þriðjung.“
Keflavíkurliðið sem spáð var efsta sæti deildarinnar fyrir mót hefur ekki farið vel af stað til þessa. Setti spáin aukapressu á liðið sem hefur farið öfugt ofan í það?
„Auðvitað var það markmiðið að vinna deildina. Við bjuggumst við því að þetta yrði ótrúlega jöfn deild sem þetta reynist svo vera og bara frekar góð deild. Við þurfum bara að girða okkur í brók og ná aðeins betri takti í liðið.“
Þrátt fyrir tapið var besti leikmaður vallarinns Keflvíkingur. Markvörðurinn Anna Arnarsdóttir átti stórleik svo ekki sé fastara að orðið kveðið og þessi efnilegi markvörður sem fæddur er árið 2008 verður ekki sökuð um tapið á nokkurn hátt.
„Hún er bara klikkuð, ótrúlega góð. Það sást í leiknum í dag hvað hún er ótrúlega öflugur markmaður. Hún var bara óheppinn að boltinn skyldi fara inn.“
Sagði Kristrún en allt viðtalið við hana má sjá hér að ofan
Athugasemdir