Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 19:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hálfleikur: Chelsea í miklum vandræðum
Abde Ezzalzouli fagnar markinu
Abde Ezzalzouli fagnar markinu
Mynd: EPA
Það er kominn hálfleikur í Póllandi þar sem Real Betis og Chelsea eigast við í úrslitum Sambandsdeildarinnar. Real Betis er 45 mínútum frá því að vinna sinn fyrsta Evróputitil í sögunni.

Abde Ezzalzouli skoraði eina mark hálfleiksins fyrir Betis snemma leiks þegar hann skoraði með góðu skoti í fjærhornið úr teignum.

Chelsea hefur verið mun meira með boltann en gengið afskaplega illa að skapa sér almennileg færi og hefur ekki náð að valda Adrian í marki Betis miklum vandræðum.

Margir leikmen Lundúnaliðsins hafa verið í miklum vandræðum en þá einna helst Malo Gusto en búast má við því að Reece James komi inn á strax í hálfleik.
Athugasemdir
banner
banner